Veiðidagur fjölskyldunnar 30. júní

Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 30. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið.

Landssamband Stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir Veiðidegi fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum.

Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt. Í ár verður 28 vötn í boði á veiðideginum.

Eftirtaldir veiðistaðir verða í boði frítt fyrir alla fjölskylduna:

Á Suðvesturhorni landsins verður frítt að veiða í Elliðavatni, Meðalfellsvatni, Þingvallavatni fyrir landi Þjóðgarðsins og Úlfljótsvatni.

Á Vesturlandi og Vestfjörðum verður frítt að veiða í Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni, Eyrarvatni, Langavatni á Mýrum, Hítarvatni, Vatnasvæði Lýsu, Hraunsfjarðarvatni, Baulárvallavatni, Haukadalsvatni, Vatnsdalsvatni í Vatnsfirði og Syðridalsvatni í Bolungarvík.

Á Norðurlandi verður frítt að veiða í Hópinu, Höfðavatni, Vestmannsvatni, Botnsvatni, Ljósavatni, Hraunhafnarvatni, Æðarvatni og Arnarvatni.

Á Austurlandi verður frítt að veiða í Kringluvatni, Urriðavatni, Langavatni, Víkurflóði og Þveit.

Upplýsingar um hvaða veiðisvæði er að ræða má nálgast á heimasíðu Landssambands stangaveiðifélaga www.landssambandid.is  eða fá bækling um það í flestum veiðibúðum og á Olís-stöðvum um land allt.

Smellið hér til að opna bæklinginn.