
Sextán manns sóttu aðalfund Landssambands Stangaveiðifélaga undir yfirskriftinni Framtíð LS og hlutverk þess fyrir Stangaveiðifélög.
Fundurinn var að þessu sinni haldinn hjá okkur í SVFA á Akranesi síðastliðinn laugardag. Fyrr um morguninn fór fram formannafundur þar sem formenn allra aðildarfélaga áttu kost á að sitja lokaðann fund.
Um hefðbundinn aðalfund var að ræða og var m.a. farið yfir ársskýrslu stj
órnar og tilgang LS. Sambandið sem fyrst og fremst er starfrækt sem öflugur málsvari stangaveiðifélaga í landinu hafði á síðasta starfsári unnið að mörgum verkefnum sem snúa m.a. að samskiptum við opinbera aðila, stangaveiðifélög og hagsmunaaðila. Ásamt því hefur sambandið sinnt lögbundnum verkefnum og skemmtilegum átaksverkefnum s.s. fluguhnýtingakeppni og veiðidegi fjölskyldunnar.
Samþykkt var á fundinum að fresta kosningu til stjórnar og kosningu formanns til 19. nóvember næstkomandi. Sitjandi formaður er því enn um sinn okkar maður í Stangaveiðifélagi Akraness, Ingólfur Þorbjörnsson.
Samþykkt var ályktun LS um hugsanlega færslu Veiðimálastofnunar frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti til umhverfisráðuneytis og er ályktunin birt hér að neðan.
Aðalfundur Landssambands stangaveiðifélaga haldinn þann 17. október 2009 lýsir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum flutningum á forræði Veiðimálastofnunar frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti til umhverfisráðuneytis. Með þessum flutningi myndi stefnt í hættu því góða samstarfi og samvinnu sem hagsmunaaðilar hafa átt við Veiðimálastofnun. Hér er sérstaklega horft til þess áherslumunar sem óneitanlega er milli auðlindastjórnunar og umhverfisverndar. Aðalfundur LS leggur á það þunga áherslu að mikil ánægja er með hvernig Veiðimálastofnun hefur starfað og að starfsemi hennar verði ekki sett í uppnám.
Mynd; Aðalfundur LS – Hans U. Ólason SVH, Reynir Þrastarson SVFR, Hafsteinn Kjartansson SVFA og Ingólfur Þorbjörnsson SVFA.





















.jpg)