Á hádegi 24. júlí voru komnir 45 laxar á land í Andakílsá. Þrátt fyrir stórstreymi síðustu daga þá hefur það ekki dugað til þess að laxinn gengi upp. Frekar skrýtið ástand í ánni en skv. veiðimönnum sem luku veiðum í gær (24. júlí) urðu þeir ekki varir við fisk nema á einum stað, Fossbakka efri (nr. 4). Nánst öll veiðin hefur komið upp úr veiðistað nr. 4 það sem af og t.a.m. hefur engin lax komið upp úr Nátthagahyl (nr. 6) sem hefur undanfarin ár verið gjöfull.
Greinasafn fyrir flokkinn: Óflokkað
Fáskrúð komin í 36 laxa þann 18. júlí
Samkvæmt veiðimönnum sem luku veiðum á hádegi þann 18. júlí var búið að skrá 36 laxa í bókina í Fáskrúð.
Mest hefur komið á land úr Hellufljóti eða 12 laxar og þar næst á eftir 11 laxar úr Brúarstrengjunum. Aðrir veiðistaðir sem hafa verið að gefa laxa eru m.a. Katlafossar, Viðauki, Efri Strengur, Viðbjóður, Neðri Stapakvörn og Eirkvörn.
Veiðimenn voru sammála um að slangur af laxi sé vítt og breytt um ána en lítið minnkandi vatn og mikill hiti hefur áhrif á tökuviljann. Stærsti lax sumarsins til þessa kom á land í Katlafossum þann 17. júlí en það var glæsilegur 90cm hængur. Það verður spennandi að sjá hvað gerist á næstu vikum því nú er stækkandi straumur sem færir veiðimönnum vonandi enn meiri skemmtun við árbakkann.
Related Images:
Opnun í Fáskrúð
Tvö fyrstu hollin í Fáskrúð hafa lokið veiðum. Samtals hafa veiðst 10 fiskar á þessum fjórum dögum. Flestir hafa fengist niður í Efri Brúarstreng en aðrir í Hellufljóti. Talsvert hefur sést af fiski í Hellunni en hann virðist ekki vera búinn að dreifa sér mikið um ánna enn sem komið er skv. veiðimanni sem lauk veiðum í gær.
Related Images:
Fyrstu laxarnir komnir á land í Andakílsá
Fyrstu laxar sumarsins eru komnir á land í Andakílsá.
Tveir fyrstu laxarnir fengust þann 24. júní í Efri Fossbakkahyl. Daginn eftir landaði veiðimaður svo laxi og var það einnig í Efri Fossbakka. Að auki urðu veiðimenn varir við lax í Nátthagahyl og væna bleikju niður við gömlu brú.
Sannarlega spennandi tímar framundan í Kílnum.
Related Images:
Kastnámskeiðið gekk vel
Kastnámskeiðið gekk vel og viljum við þakka leiðbeinandanum, Guttormi P Einarssyni, sérstaklega fyrir hans framlag. Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka. MYNDIR
Related Images:
Flugukastnámskeið
SVFA stendur fyrir kastnámskeiði, sunnudaginn 29. maí kl. 16-19. íþróttahúsinu Jaðarsbökkum.
Allir velkomnir – aðgangur ókeypis.
Þátttakendur eru beðnir um að koma með stöng og tilheyrandi.
Fyrirkomulag kennslunar ræðst af fjölda og þekkingu þátttakenda.
Til þess að halda utan um fjölda eru áhugasamir beðnir um að senda póst um þátttöku á meðfylgjandi netfang: bui.orlygsson@gmail.com
kveðja, stjórn SVFA
Related Images:
RISE – Veiðisýning í Háskólabíó
RISE Veiðsýningin verður haldin í Háskólabíó næstkomandi fimmtudag (14.4)
Hún hefst með áhugaverðu málþingi kl.16.00, sem ber fyrirskriftina „Neikvæð umhverfisáhrif sjókvíaeldis, Verndum íslenska laxfiska“
Áætlað er að málþingi ljúki 18.30. Svo verða sýndar nokkrar stuttmyndir ásamt því að hin ýmsu fyrirtæki eru að kynna sína vöru.
Áhugasamir kynni sér meðfylgjandi hlekk http://www.icelandangling.is/veidisyningin
Related Images:
Áhyggjur af auknu sjókvíaeldi laxfiska
Í Fréttablaðinu í dag (31.3.2016) birtist sameiginleg grein Landssambands stangaveiðifélaga sem SVFA á aðild að og Landssambandi veiðifélaga.
Tilefnið er fyrirhuguð stórsókn í sjókvíaeldi laxfiska við Íslandsstrendur.
Meðfylgjandi er hlekkur inn á greinina á síðu Landssambands stangaveiðifélaga.
Related Images:
Silungasvæði Vatnsdalsár – leyfi
Í samstarfi við veiðifélagið Ármenn þá bjóðum við fimm stangir í holli á silungasvæði Vatnsdalsár 18.-21. júlí, ½ – 1 – 1 – ½ . Stangarverðið er kr. 18.500-. dagurinn eða kr. 55.500.- stöngin í hollinu með gistingu. 10 stangir á svæðinu, gistipláss fyrir ríflega 20 þannig að auðvelt er að tvímenna á stöng ef menn kjósa. Ath. einungis veitt á flugu.
Fyrirspurnir má senda á meðfylgjandi netfang
Related Images:
Vötnin í Svínadal
Líkt og undanfarin ár mun félagsmönnum SVFA standa til boða að veiða frítt í vötnunum þremur í Svínadal: Þórisstaðavatni, Eyrarvatni og Geitabergsvatni.
Börn upp að 18 ára aldri veiða frítt í fylgd með leyfishafa. Við hvetjum félagsmenn eindregið til að nýta sér þennan kost.
Veiðitímabilið er 1. apríl – 25. september.