Þá er öðru fluguhnýtingakvöldi félagsins lokið og heppnaðist það með eindæmum vel.
Leiðbeinandi var Sigurveig Runólfsdóttir og fór hún ítarlega í hnýtingu á nokkrum vinsælum laxaflugum en Sigurveig er sjálf mikil áhugamanneskja um laxveiði og enginn aukvissi þegar kemur að hnýtingum.
Hnýttar voru flugurnar Red Frances, Black Sheep og Green Brahan og voru hnýtarar bara nokkuð sáttir við útkomuna og vill stjórn félagsins þakka Sigurveigu sérstaklega vel fyrir komuna.
Þess má til gamans geta að á fyrsta fluguhnýtingakvöldinu sem fram fór 12. febrúar s.l. leiðbeindi Sigurður Pálsson hnýturum og tók fyrir púpurnar Copper John, Himmelfahrt og marfló en ásamt því að vera stórgóður hnýtari er Sigurður afbragðs sögumaður og algjör viskubrunnur þegar kemur að hverskins veiðitengdum málefnum. Kappinn mætir aftur til leiks á næsta kvöldi en það fer fram fimmtudaginn 12. mars kl 20:00 og verður gaman að sjá hvað hann kokkar upp úr töskunum sínum þá. Sigurður mætir með öll efni og verkfæri þegar hann leiðbeinir, fyrir þá sem þurfa.
Rétt er að taka fram að yfirbragð þessara hnýtingakvölda er afar rólegt og hvetjum við alla félagsmenn unga sem aldna, vana sem óvana til þess að mæta og taka þátt í félagsstarfinu. Ávallt heitt á könnunni !
Utanfélagsmenn velkomnir, 750 kr. pr. mann kvöldið.

