Varla hefur verið hægt að kvarta undan vatnsleysi í lok veiðitímabilsins 2008 en þann 19. september var við veiðar í Andakílsá skagamaðurinn Svavar Garðarsson ásamt fjölskyldu. Ekki spillti fyrir það laxamagn sem gengið hafði í ána um sumarið en metveiði var í ánni alls 839 laxar en fyrra met hljómaði upp á 321 lax og stóð óhaggað síðan 1975.
Eins og sjá má á myndunum sem við fengum sendar er áin sem eitt beljandi stórfljót og hefur það vissulega verið skemmtileg áskorun að eiga við annars þessa nettu veiðiá við svona aðstæður.
Laxarnir voru að sína sig langt upp á bílastæði eða þar sem eðlilegt væri að leggja bifreið við venjuleg vatnsskilyrði. Félagið þakkar Svavari kærlega fyrir myndirnar.
Andakílsárfossar í öllu sínu veldi.
Við veiðar á bílastæðinu í þremur.
Veiðilegur strengur.
Séð frá veiðihúsinu.
Þarna er bílastæði í eðlilegum skilyrðum.
Út í miðju fljóti.
Gríðarlegt vatnsmagn.
Ljósmyndir úr safni Svavars Garðarssonar